Skilmálar
Öll verð á heimasíðunni eru án 24% vsk.
- Tæki og fylgihlutir eru afhentir leigutaka í fullnægjandi, hreinu, og notkunarhæfu ástandi.
- Leigutaki skal yfirfara tækið við móttöku og tilkynna tafarlaust um hugsanlega galla eða flutningsskemmdir.
- Kvartanir sem berast eftir fyrsta virka leigudag hafa ekki lagalegt gildi og telst tækið þá afhent í góðu ástandi.
- Leigutaki skal nota tækið á ábyrgan hátt og í samræmi við öryggisstaðla og reglugerðir um vinnuvernd.
- Einungis hæfir aðilar með tilskilin réttindi mega stjórna tækinu.
- Óheimilt er að flytja tækið af umsömdum vinnustað eða framleigja það án skriflegs samþykkis leigusala.
- Leigutaki ber ábyrgð á daglegu eftirliti og viðhaldi, svo sem að athuga stöðu á olíu, kælivökva og rafgeymavatni, auk smurningar og hleðslu.
- Einungis má nota efni (olíu, eldsneyti, o.fl.) sem leigusali vísar til.
- Leigutaka er með öllu óheimilt að gera breytingar eða viðgerðir á tækinu.
- Leigutaki ber fulla ábyrgð á öllu tjóni sem verður á tækinu á leigutímanum.
- Leigusali ber enga ábyrgð á rekstrartapi, hagnaðarmissi eða öðru afleiddu tjóni, óháð því hvort það tengist bilun á tækinu.
- Leigusali ber ekki ábyrgð á skemmdum á undirlagi, aðkomuvegum, eða neðanjarðarlögnum á vinnusvæði.
- Leigutími hefst þegar tæki er gert aðgengilegt fyrir leigutaka og lýkur þegar afskráning (off-hire) hefur átt sér stað.
- Leigutaki greiðir allan flutningskostnað.
- Leigutaki skal skila tækinu með fullan eldsneytistank.
- Sé tækinu skilað með vöntun á eldsneyti verður rukkað fyrir áfyllingu samkvæmt verðskrá leigusala.
- Fyrir rafdrifin tæki er innheimt sérstakt hleðslugjald.
- Tæki skal skilað í sama ástandi og það var móttekið. Ef þörf er á þrifum verður það rukkað sérstaklega samkvæmt verðskrá leigusala.
- Reikningar skulu greiddir innan 10 daga frá útgáfu.
- Við vanskil reiknast hámarks leyfilegir dráttavextir.
- Ágreiningur um einstaka liði reiknings heimilar leigutaka ekki að fresta greiðslu á öðrum hlutum hans.
- Leigusali hefur ótakmarkaðan aðgang að tækinu til eftirlits á leigutímanum.
- Við vanskil eða önnur brot á skilmálum getur leigusali rift samningnum fyrirvaralaust og sótt tækið á kostnað leigutaka.